föstudagur, mars 27, 2009

Horfinn frá

Ég er orðinn fráhverfur hinu og þessu. Þar á meðal b-orðinu... allavega í bili, þar sem ég sé ekki í fljótu bragði hvernig ég á að hrinda því í framkvæmd.

Ég er líka nokkuð viss um að leikarar þurfi að poppa upp á radarnum af eigin rammleik til að eftir þeim sé munað og um þá sé hugsað. Það þýðir ekkert fyrir þá að draga sig í hlé og bíða eftir því að fólk fari að muna eftir þeim og sakna þeirra.

Lag dagsins: Oh, what to chose, what to chose... hmmm... White tiger með Pétri Ben Jú, ég held að það sé málið. Algjörlega. Öll hin eru eitthvað svo... risque og afvegaleiðandi.

miðvikudagur, september 24, 2008

My goodness, my Guinness...



Share one with a friend!

Ég veit ekki alveg hvað mér finnst um þessa auglýsingu...

sunnudagur, júlí 06, 2008

Press the spacebar!



Reynið ykkur í þessu!

Þetta er ótrúlega heilalaust og skemmtilegt... en líka nothæft til að fylgjast með CNS þreytu. Gaman að því!

miðvikudagur, júní 25, 2008

Honey, can you...



Þessi gaur hefur nokkuð til síns máls, gott að maður horfir ekki mikið á sjónvarp.

föstudagur, júní 06, 2008

Home sweet home!


Það er mjög gott að vera kominn heim á Eskifjörð og vita að maður eigi eftir að vera hér í allt sumar. Vinnan er fín, og ég á bara eftir að fínpússa nokkur logistic atriði, þá verður þetta perfect!
Ef þið komið til Austurlands í sumar, þá hringið þið og kíkið til mín!

mánudagur, júní 02, 2008

Ritgerðarskil


Þá er stífum skrifum lokið, og prentun í gangi á rannsóknarverkefnisritgerðinni "Meðferð fullorðinna með vaxtarhormóni á Íslandi"

Nææææææææs!

Get ekki annað sagt en að ég sé sáttur.

Þá eru það bara greinaskrif um efnið sem maður reynir að koma í einhver evrópsk endocrinologiublöð og svo læknablaðið...

miðvikudagur, maí 28, 2008

Fyrirlestur á rannsóknaráðstefnu læknanema


Jæja, þetta gekk allt eins og í sögu. Allar spurningarnar voru frekar léttar, og engin af þeim sem ég óttaðist kom, þannig að þetta var bara gott.

Fólk sýndi þessu líka þó nokkurn áhuga, sem var mjög gott. Fyrirfram var ég eiginlega smeykastur um að fólk nennti ekki að hlusta og að öllum væri alveg sama þannig að enginn myndi spyrja, en það var öðru nær.

All in all: Success!

sunnudagur, maí 25, 2008

Svona líður mér núna...


...en mig grunar að fleiri þriðja árs nemum líði líka svona...

laugardagur, maí 24, 2008

Þriðja ár að klárast...

Úff... ég sit hérna sveittur yfir fyrirlestrarsmíð, og öfunda köttinn sem liggur makindalegur í sófanum og fylgist með mér.



En þetta verður allt búið annan júní... allt búið. Og þá er það bara sumarið fyrir austan sem bíður mín. Ég get ekki neitað því að ég hlakka mikið til að vera fyrir austan í sumar. Ég hef ekki búið þar í sex sumur í röð, þannig að þetta verður mjög gaman. Að mestu leyti verða þetta bara ég og kallinn að dunda okkur eitthvað á kvöldin þegar ég er ekki í vinnunni, og svo fæ ég tækifæri til að hitta Sigga eitthvað líka.

All in all... stefnir í gott sumar, má heldur ekki gleyma Kanadaferðinni í júní sem verður skrautleg.

Vonandi verður haustið síðan jafngott, ég hef allavega góða tilfinningu fyrir því, eins og sumrinu.

mánudagur, maí 12, 2008

Mmmm...

How many cannibals could your body feed?
Created by OnePlusYou

laugardagur, maí 10, 2008

Næstum ár...


Það er alveg spurning um að dusta rykið af þessu og taka aðeins til hérna...

laugardagur, ágúst 18, 2007

Hinn blauti draumur stöðumælavarðanna

Ef einhver dagur, eitthvað ástand myndi teljast draumi líkast í huga stöðumælavarðar sem þjáðist af því að vera fagidjót (abbabbabb, bara 4,7m frá gatnamótum, ekki 5m. Gul lína á gangstéttinni, brunahani í nánd) þá er það dagurinn í dag og kvöldið í kvöld. Bílar á bíla ofan, og nærri öllum ólöglega lagt. Stöðumælavörður með metnað fyrir starfinu færi yfir um af því að geta sektað alla þessa bíla (ég trúi því staðfastlega að þeim finnist þeir sekta bílana en ekki eigendurna)...

Miðborgin verður sneisafull í kvöld og að sjálfsögðu fer hver þangað á sínum bíl í stað þess að stunda fásinnu eins og að samnýta bílana.

Ég fer þangað í kvöld. Ég fer sennilega einn í bíl.
Seinna um kvöldið bæti ég það aðeins upp með því að fara tvö heim.

Hvernig er það annars, má ekki leggja hvar sem er í bænum án sektar hvort sem er í kvöld? Þá fer blauti draumurinn fyrir lítið...

laugardagur, júní 23, 2007

Chichén Itzá

Ótrúlegur stadur! Fullkomnun í honnun og fegurd. Tetta er medal tess sem mér datt í hug tegar ég gekk um svaedid í Chichén Itzá og skodadi pýramída og pelótavoll.

Ef stadid er á ákvednum stad vid pýramídann og klappad, tá svarar bergmálid í honum med fuglshljódi (og stundum svarar fugl úti í skógi bergmálinu eftir ad hafa blekkst af tví).

Pýramídinn er med 9 stollum sem tákna hina níu heima í nedra. Hverjar troppur upp hlid hans eru 91trappa sem samanlagt med toppfletinum gera 365fleti.

Á vor og haustjafndaegrum sést merkilegt fyrirbaeri tar. Tá láta skuggamyndir líta út fyrir ad gudinn Kukulcán (sem er fidradur snákur med vaengi) sé ad skrída nidur hlidar pýramídans.

Tetta er byggt tegar Mayarnir voru undir áhrifum af Toltecum. Mayunun fannst gód hugmynd ad lifa í sátt og samlyndi, en toltecarnir (komnir af aztecum) voru mun hrifnari af mannfórnum. Óskopin hófust semsagt tegar toltecar kynntu maya fyrir gudinum chak-mool sem var gud mannfórna.

Mayar fóru adeins adra leid ad fórnunum en toltecarnir. Toltecar slátrudu taplidinu í pelotaleiknum, en mayar fórnudu bara fyrirlida sigurlidsins!!! Teir einu sem fengu ad spila voru aedstu prestarnir, og lidid sem vann og fjolskyldur teirra fengu ad vera vid vold áfram, en taplidid var hneppt í traeldóm eda sent á brott med fjolskyldum sínum til ad sinna bústorfum langt frá borginni algerlega valdalausir tannig ad mikid var í húfi.
Fórnin fór fram tannig ad fórnarlambid fékk goróttan drykk sem hafdi morfínlík áhrif. Sídan var hjartad skorid úr til ad tryggja ad lífsandi vidkomandi kaemist áfram og tryggdi endurfaedingu ádur en fyrirlidi taplidsins skar hofudid af, en tad var sídasta virdingarverk vidkomandi. Hofdinu var fleygt á ákvedin fórnarstad, en líkaminn var brenndur til ad tryggt vaeri ad hann kaemist til himna med reyknum.

Boltavollurinn gódi

Boltavollurinn er undur alveg út af fyrir sig! Ef stadid er á odrum endanum og hvíslad, tá heyrist tad yfir á hinn endann greinilega.

Tad sem er enn merkilegra er, ad tar sem teir toldu toluna 7 vera happatolu, tá tóku teir sig til og honnudu vollinn tannig ad tad bergmálar sjo sinnum á milli veggjanna. Tad var magnad ad heyra klapp og svo nákvaemlega 7 bergmál.

Tessi stadur verdskuldar sko stad á medal hinna nýju 7 undra veraldar sem verid er ad kjósa um tessa dagana!

Jaeja, tá er Tulum naest á dagskrá!

fimmtudagur, júní 21, 2007

Merida

Jaeja... vid sitjum her i steikjandi hita i Merida a Yucatan skaganum. Vid komumst hingad fra San Cristobal de las casas an tess ad vera areitt af kellingabeljum, og letum smamuni eins og vaelandi krakkahop um tvitugt ekki fara mikid i taugarnar a okkur.
Hotelid okkar, Dolores Alba, er alveg yndislegt med sundlaug og ollu sem vid turfum. Hedan aetlum vid a morgun til Chichen Itza og svo daginn eftir tad til Tulum.
Tad er eitt sem eg elska serstaklega vid tennan bae. Goturnar heita eftir numerum. Oddatolur fra austri til vesturs og slettar tolur fra nordri til sudurs. Ekkert mal ad rata ef madur er agaetlega attadur.
Allavega, ta sitjum vid her tar til veitingastadurinn sem vid aetlum ad fara a opnar. Eg verd a vardbergi gegn ollum donakollum sem angra Berglindi!

sunnudagur, júní 17, 2007

San Cristóbal

Vid fórum frá Pochutla um kvoldid og ákvádum ad stoppa í Tuxtla ádur en vid kaemum til San Cristóbal til ad geta farid í gljúfrasiglingu í Chiapas de Corzo. Um kl.4:30 byrjar amerísk kelling um fertugt ad garga á okkur úr saetinu vid hlidina:

"Thieves! Give me back my money, I know you took it, I already told the driver!"

Kellingin leit sirka svona út

Okkur stód ekki alveg á sama tannig ad vid ákvádum ad vaka restina af ferdinni ef ske kynni ad hún reyndi ad rádast á okkur og raena okkur eda gera okkur eitthvad verra.

Hún sagdi ekkert meir tad sem eftir var ferdarinnar, en tegar vid stoppudum í Tuxtla tá hófst bíóid fyrir alvoru!

Hún fór fremst í rútuna og byrjadi ad garga:

"Someone stole 200pesos from my purse and I want it back! I`m going to Palenque for a week and I only have 500pesos to pay rent and buy food. If you don`t give me back my money I will prosecute all of you! I think it was you, girl in the white sweater (benti á Berglindi). I`m not like you going to other countries robbing banks and shooting children!"

Vid fórum audvitad bara ad hlaeja ad kellingunni, en hún kom afturí rútuna til okkar med oryggisvord og heimtadi ad hann handtaeki okkur. Vordurinn bad hana ad anda framan í sig en hún tóttist ekki skilja hann og sagdist sídan vita ad hún hafi verid ad drekka en tad skipti ekki máli!

Vid gengum út úr rútunni og nádum í toskurnar okkar og hún elti okkur vid hvert fótmál og heimtadi ad fá ad leita í toskunum okkar. Verdirnir voru hálfvandraedalegir og bádu okkur afsokunar vid hvert taekifaeri.

Svo fórum vid med toskurnar okkar í oryggisgeymslu a rútustodinni og tá gekk hún ad okkur í sídasta skipti.

"Thieves! Give me back my money! You`re going down for this!"

Ég sendi henni tóninn til baka og svo fórum vid Berglind med leigubíl til Chiapas og í aedislega gljúfrasiglingu um cañon de Sumidero.

Tad er ótrúlega fallegt tar. Tad er lygilegt ad sjá haestu klettana rísa tverhnípta kílómeter upp í loftid. Dýraríkid tar er líka líflegt. Vid sáum 2,5m krókódíl reyna ad veida sér hraegamma i matinn og svo sáum vid líka spider monkeys sveifla sér um í trjánum.

Sídan tókum vid bíl til baka til Tuxtla og komumst med herkjum til baka á rútustodina. Tadan lá leidin beint til San Cristóbal tar sem vid tékkudum okkur inn á hótel San Cristóbal rétt vid torgid eftir ad hafa tékkad á nokkrum hótelverdum.

Tar fór ég úr og aetladi í sturtu, en tad var ekki fogur sjón sem blasti vid. Ég var svo sólbrunninn á okklanum odrumegin ad ég var med blodrur og hinn var ekki mikid skárri. Ég tók tví rólega tad sem eftir var dagsins og Berglind, tessi elska, bar aloe vera á mig og hjúkradi mér og fór svo út og keypti ruslfaedi handa mér. Besta kaerasta í heimi! Vid endudum kvoldid á tví ad horfa á Joe Black og sofnudum svo.

Í dag turftum vid svo ad tékka okkur út og faera okkur um hótel. Ég skakklappadist um baeinn í leit ad hóteli med Berglindi. Leitin endadi vel tar sem vid fundum dýrindis hótel á einni hlidargotunni á gódu verdi. Tegar vid nádum svo í bakpokana turfti ég ad halda á mínum í fanginu tví ég var svo sólbrunninn á herdunum ad ég gat ekki haft ólarnar tar.

Vid aetlum svo bara ad taka tví rólega naestu daga hérna í San Cristóbal tar til ég verd ordinn tokkalega ferdafaer aftur. Tetta er fínn baer til ad bída svona brunavesen af sér, mjog líflegur og fallegur.

Hasta luego amigos!

p.s. Tegar vid fórum ad hugsa betur um kellinguna, tá fannst okkur líklegt ad hún vaeri med borderline personality disorder. Tetta var líka sennilega ránstilraun hjá henni. Hana vantadi pening (týndi honum, drakk fyrir hann, notadi mezcaline eda peyote fyrir hann) og benti á tad fólk sem var líklegt til ad eiga pening til ad reyna ad ná honum af okkur. Ég átti von á tví ad geta lent í ráni, en bjóst aldrei vid tví ad verda tjófkenndur!